Skilmálar

SGB Safaris ehf.
Grettisgötu 12, 101 Reykjavík, Ísland
Sími: 661-9864

SGB Safaris ehf. / Skotfæri.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti.

Þar sem sumar vörur SGB Safaris ehf. / Skotfæri.is eru leyfisháðar þá er ekki hægt að greiða í gegnum Skotfæri.is með greiðslukortum. Við pöntun á vöru verður haft samband við kaupanda þar sem óskað verður eftir skotvopnaleyfi í þeim tilfellum sem það á við.

SGB Safaris ehf. / Skotfæri.is áskilur sér þann rétt að hafna viðskiptum á grundvelli þess að kaupandi hefur ekki viðeigandi leyfisréttindi til vörukaupa.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar samkvæmt samkomulagi eftir að pöntun hefur borist. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og gefa upp um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar nema að annað sé tekið fram. SGB Safaris ehf. / Skotfæri.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá SGB Safaris ehf. / Skotfæri.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Sendingakostnaður

Við sendum allar vörur með Íslandspósti og er sendingarkostnaður samkomuatriði við kaup á vöru.

Greiðsluleiðir

Aðeins er hægt að greiða með millifærslu eftir að SGB Safaris ehf. / Skotfæri.is hefur staðfest vörupöntun.

Að skipta og skila vöru

Skiptiréttur er í gildi á vörum sem keyptar hafa verið af SGB Safaris ehf. / Skotfæri.is. Við vöruskil getur þú fengið inneignarnótu en einungis ef varan er í upprunalegum umbúðum, ónotuð og óskemmd. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á tilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað nema viðskiptavinur geti sýnt kvittun fyrir vörukaupum.

Gölluð vara

Sé vara gölluð áskilum við okkur þann rétt að kanna hvort hægt sé að bæta eða laga vöruna. Ef ekki er hægt að bæta eða laga umrædda vöru getur viðskiptavinur óskað eftir inneign eða endurgreiðslu. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Öryggisskilmálar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefjast þegar móttaka vöru á sér stað.

IP tala viðskiptavina er skráð við greiðslu vörupöntunar. Þær upplýsingar ásamt persónuupplýsingum og upplýsingum um vörukaup gætu verið notaðar í tengslum við lögreglurannsókn vakni grunur um sviksemi eða misnotkun greiðslukorta.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Lög um neytendakaup
Lög um samningsgerð
Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu
Lögræðislög
Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga